Færsluflokkur: Bloggar

Og svo kom Urrið.....

Fyrst kom Murr ehf.með Murr kattamat - heilfóður sem er hreint frábært fyrir alla ketti og á afskaplega góðu verði. Engin eyðsla á gjaldeyri - og skapar störf í erfiðu árferði.

Nú komum við með Urr smáhundamat. Hreint frábær matur fyrir alla hunda - þó við kjósum að kalla hann smáhundamat.

Hér er því um raunverulegan og ódýran kost fyrir katta og hundaeigendur!

vikudagur - auglysing


Með himnaríkið á næstu grösum - hvert liggur leið?

Það er ekki á hverjum degi sem maður kemst í nána snertingu við guðdómleikann. En það gerðist nú samt hjá mér í gærkveldi.

Og það sem meira er - ég var sem Adam í Aldingarðinum forðum - nánast nakinn. Ég var nefnilega í gufu.

Og hvar ég sat í rólegheitum og hugsaði um líðandi stund - spáði í hver það væri sem á endanum myndi borga æseiv - hvort Davíð færi í Moggann eða hvort kindur kæmu af fjöllum líkt og framsóknarmennirnir sem smala þeim.

Í þessum þönkum mínum opnast dyrnar á gufunni. Inn stígur góðvinur minn - kaþólski presturinn á Ísafirði. Við tókum tal sama og ræddum stöðu lands og þjóðar. Ekki leið á löngu uns dyrnar opnuðust á ný og inn gekk prestur númer tvö. Sá var kaþólski presturinn á Akureyri - og taldi ég fullvíst að nú ætti að sauma að mér og setja mér fyrir endalausar maríubænir. Maður er jú búinn að syndga ótæpilega í gegnum árin. Nú síðast með því að koma ekki í veg fyrir bankahrunið.

Og ef ekki væri nóg að hafa tvo kaþólska presta með mér í gufunni þá birtist sá þriðji - og sá alla leið frá Ástralíu!

Ég svitnaði. Kóf svitnaði og hugsaði með mér að nú væri mér líklega borgið - að nú fengi ég fyrirgefningu syndanna og himnaríkið stæði  mér opið uppá gátt! Hallelúja.... 

Eftir dvölina í gufuklefanum gekk ég út í kuldann - mjúkar raddir prestanna og heilagur andinn úr gufubaðsofninum svifu um baðhúsið - ég taldi mig hólpinn og vart komast nær himnaríkinu.

En eins og lúður í þokunni þá gall úr sturtuklefanum: "ég sagði það fyrir tuttugu árum - að við eigum að fara í Evrópusambandið"!

Undir sturtunni stóð maður ljós á hörund - alíslenskur og rammvestfirskur - bandaði frá sér og las mér pistilinn - hátt og snjallt.

Svo hélt hann áfram: "þetta eru glæponar allt saman og eina lausnin er Evrópusambandið".

Raddir prestanna urðu að mjálmi við hlið þessa stóra manns - hann kunni að predíka - og var með lausnina á hreinu. Sú lausn hafði ekkert með himnaríki að gera - í það minnsta ekki án viðkomu í Brussel -  Nei - leiðin að lausninni var í austur - til Evrópu og í Evrópusambandið. Svo mætti fara þaðan til himna ef menn kysu svo.

Já Dóri Hermanns var auðveldlega þriggja presta maki.


Urr smáhundamaturinn fellur vel í kramið!

Það er alltaf ánægjulegt að fá skemmtileg viðbrögð við framleiðslunni hjá okkur í Murr. Þetta bréf sendi ánægður neytandi;

Hæ hæ mig langaði bara að þakka ykkur fyrir að framleiða þennan frábæra smáhundamat. Ég á 4 ára Chihuahua tík sem er alveg SJÚK í matinn! Við prófuðum að láta saman á disk Urr matinn og síðan blautmatinn sem hún borðaði áður en Urr kom á markaðinn, hún hakkaði í sig Urr matinn og sleikti diskinn þar sem maturinn var en fussaði og sveijaði yfir hinum blautmatnum. En já, til hamingju með þennan frábæra árangur!
Kv. Ragnheiður og Sunna (Urr aðdáandi).

 

Við þökkum fyrir það og hvetjum fólk til að prufa þessa nýju framleiðslu okkar!


Ráðabrugg ríkistjórnarinnar - hverjum á að hjálpa og hverjum ekki.....

Ég bý á landsbyggðinni. Ég tala því oftar við fólk á landsbyggðinni en ég geri við fólk búsett í Reykjavík.

Og fólkið á landsbyggðinni á það sammerkt að hafa keypt sér ódýrari hús - skuldsett sig minna en þeir sem búa í höfuðborginni.

En lansbyggðinni berast fréttir um að ríkisstjórnin ætli að koma þeim til hjálpar sem nú eru yfirskuldsettir vegna íbúðakaupa og húsabygginga. Og landsbyggðarfólkinu sem ég hef spjallað við finnst þetta á margan hátt undarlegt - einkum í ljósi þess að lánin sem á landsbyggðinni hvíla hafa auðvitað hækkað í sama hlutfalli. Munurinn sé bara sá að enginn fengi nokkurtíma lán til að byggja 100 milljóna hús - eða jafnvel bara 50 milljón króna hús - á landsbyggðinni. Bara í Reykjavík og nágrenni. Það fengist aldrei lán - púnktur. Af hverju?... jú vegna þess að það hefur aldrei þótt nein "gáfuleg fjárfesting" að byggja hús á landsbyggðinni.

En fólk hefur samt gert það. Notað sömu steypu og sama járn - sama tré og sömu gler. En allt bara svo mikið minna í sniðum og enginn lúxus með tveim amerískum ískápum og fjórum ofnum í eldhúsi líkt og þarf fyrir sunnan.

Þetta flokka margir sem óráðsíu. Kerfisvillu - því bankarnir lánuðu og hvöttu fólk til dáða.

En ekki á landsbyggðinni.

Fyrr en núna. Nú á landsbyggðarfólkið að taka þátt í að borga fyrir hina. Þessa sem bjuggu fyrir sunnan eða flutt þangað - keyptu stórt eða byggðu flott.

Með niðurfellingu á skuldum umfram veð - er auðvitað verið að koma á móts við fólk sem ekki getur greitt af lánum. Það er vel. En hinum er algjörlega gleymt - sem taka á sig byrðar - skulda og skulda meira en fyrir bankahrun. Hví eru skuldir á íbúðarhúsnæði ekki fært niður hjá þeim líka - um sama hlutfall?

Það skil ég ekki. Og það skilja fæstir. Við megum ekki láta þannig að í landinu búi tvær þjóðir - höfuðborgarsvæðið og svo hinir.

Ég er einn af hinum - sem skulda - bílalán og önnur lán. Ég vil njóta sömu fyrirgreiðslu þó ég búi á landsbyggðinni.

En  þú?Crying


Gormur frá Súðavík gefur Urr smáhundamat hæstu einkunn! - ný viðbót frá Murr ehf.

Í þessari viku kemur frábær hundamatur frá Murr-  en það er Urr smáhundamatur.

IMG_3055[1]Hér er um fullkomna blöndu að ræða - unna úr hreinu íslensku hráefni. Frábær matur fyrir alla hunda!

Söluaðilar eru þeir sömu og selja Murr kattamat - sjáið frekar á heimasíðu Murr ehf.

IMG_3030

Hér er ánægður neytandi - hann Gormur í Súðavík....Gormur+1[1]gormur+2[1] og hann er sko ekki að líta upp á meðan hann rífur í sig dagskammtinn af Urr hundamat!

Gormur+Urr[1] Og nú kemur Urr í verslanir Bónus strax á morgun!


Hvurslags stofnun er þessi kirkja - hefur hún eithvað með guð að gera?

Ég hef aldrei almennilega skilið kirkjuna sem slíka. Mér hefur ævinlega fundist þar allt loga stafnanna á milli út af málum sem snúast alls ekkert um guð. Ég trúi ágætlega á guð og veit að sá hinn sami hefur hjálpað mörgum - þó auðvitað aðrir virðast ekki eiga uppá pallborðið hjá honum. En þannig er það bara.

En kirkjan og kirkjunnar menn. Þeir rífast um allt og ekkert. Rífast um hverjir fái að vera í sóknarnefndum og ráðum - eru hátíðlegir á sunnudögum og ýlfrandi restina af vikunni. Í dag á að reka organistann og hinn daginn prestinn. Allt út af einhverju sem enginn skilur nema sóknarnefndin sem er æðri en nokkur annar uppréttur.

Og ef það er ekki nóg á þá fer kirkjan ránshendi um eigin eignir - það er ef þær eru staðsettar úti á landi. Hirðir í nafni vörslu muni og muni - sveitavarginum er ekki treystandi. Hökulinn skal frysta svo hann skemmist ekki og listaverkunum komið fyrir í geymslum svo þeirra verði ekki notið.

Ég var nefnilega um daginn staddur norður í Jökulfjörðum. Þar á bæ sem nefndur er Staður í Grunnavík er afskaplega falleg kirkja. Og kirkjunni atarna er vel við haldið og hún vöktuð af vökulum augum ferðabóndans á Sútarabúð. En viti menn. Í kirkjuna hafa komist sérfræðingar að sunnan - skrúfað ævafornt hliðið af predikunarstólnum til að sýna fyrir sunnan og geyma. Og eymdarlegar hjarir standa út í loftið líkt og þær teigi sig í átt að höfuðborginni - biðjandi: hurðina heim.

Já þetta er auðvitað engum til góðs né ánægju. Hvers vegna ferðamenn og gamlir Grunnvíkingar mega ekki njóta listilegrar hurðar sem var jú smíðuð akkúrat á þennan predikunarstól er mér hulin ráðgáta. Og þegar Sútarabúðarbóndinn kvartar er honum bent á að brátt verði restin sótt. En gervi sett í staðinn - fyrir varginn að njóta.

Og víurnar hafa þeir borið í 400 ára gamlan hökulinn sem þarna er. Sem þrátt fyrir að hafa vart á látið sjá í öll þessi ár - er sagður  "liggja undir skemmdum" af sérfræðingunum fyrir sunnan  - já og sem vilja setja hann í frysti til geymslu. Kannski ætti að benda þeim á að ekki sé nein hætta á rotnun...presturinn sé löngu kominn úr honum og greftraður samkvæmt lögum kirkjunnar.

En þrátt fyrir sérfræðiráðin og kunnáttuna þá stendur gamli prestbústaðurinn í fullkominni niðurníðslu og fæst ekki leyfi frá kirkjunni til að nýta hann í góða þágu - svo sem til gistingar fyrir þreytta ferðamenn og aðra sem langar að skoða sig um á þessum slóðum. Nei. Látið vera - kirkjan á.´

Já - það er kannski ekki skrítið þó Helgi heitinn Hóseasson hafi staðið vaktina með skilti af logandi kirkju. Því að til hvers eru þessar fallegu byggingar sem byggðar eru sem griðastaður okkar mannfólksins ef ekki til að njóta hvíldar og virða fyrir okkur falleg verk mannanna.

Ég bara spyr.


Íslenskt þjóðfélag er helsýkt af kjaftasögum og rógburði.

Það er hræðilegt fyrir fólk sem verður fyrir barðinu á kjaftasögum - jafnvel hreinum skáldsögum. Og nú er maður að heyra að fólk sé að reka af sér slyðru orðið í stórum stíl. Jafnvel kæra heilu og hálfu fréttastöðvarnar með öllum innanborðs.

Það hlýtur að vera hræðilegt.

Einhver laug því til dæmis að Björgólfur Thor hefði stungið undan peningum - jafnvel gerst svo ófyrirleitinn að flytja pening til útlanda. Um þetta var fjallað í fjölmiðli - og Björgólfur búinn að kæra. Ég skil ekki hvernig fólk hugsar - datt einhverju í hug að þeir feðgar stæðu í slíkum gjörningum - að þeir ætluðu sér að græða á annarra manna kostnað og jafnvel að geyma eða eyða peningunum í öðrum löndum? Fásinna og helber lygi - rógburður um stálheiðarlega menn.

Þeir meira að segja lögðu sig í líma við að hjálpa fólki að græða - voru með alskyns stórgróðasjóði og ávöxtuðu fé. Svo reynir einhver sjóður úti í bæ að halda því fram að þeir hafi farið óvarlega með fé - að þeir hafi verið eins og blindur fjárhirðir á háheiðinni - treyst á vindinn og lukkuna. Fásinna og hreinasti rógburður.

Svona er líka látið við ræfilinn hann Karl Wernerson - sem kenndur er við Milestone. Nú ekki eru það nú fallegar kjaftasögurnar um að hann hafi leigt einkaþotur fyrir 600 milljónir - sjálfsagt ekki verið fleiri en ríflega 500 - en fólk talar og kjaftar samt. Skammarlegt. Og að hann hafi á einhvern hátt farið illa með sjóði Sjóvár tryggingafélagsins - þetta er náttúrlega bara skáldskapur í besta lagi - eða lygi. Karl hefur auðvitað ekki gert neitt annað en að vinna sína vinnu - mala gull og gjaldeyri á lágum launum og alls ekki verið slá um sig eða því um líkt. Sveiattann.

Og svona sögur heyrir maður út um allt. Sigurjón Árnason gerði ekki neitt. Það var bankinn sem ákvað allt - og hann var bara starfsmaður þar. Líkt og Kjartan Gunnarsson, Björgólfur gamli og Halldór. Það var bankinn sem tók þessar ákvarðanir. Þetta segja þeir og þeim bar auðvitað að fylgja skipunum. Annað er rógburður og lygi. Bankinn ætlaði aldrei að skaða neinn - bara að sinna sínum kúnnum - viðskiptavinum. Og þeir unnu bara þarna. Sinntu sínu starfi af tærri snilld - eins og þeir segja sjálfir.

Og svo er ræfillinn hann Hannes Smárason. Mikið er búið að skvetta á húsin hans. Sá hefur ekki gert neitt annað en það sem siðlegt og löglegt þykir. Segir hann og annað er rógburður og lýgi. Að hann eigi marga pors jeppa og reinsróvera - það er bara tilviljun. Ég meina - maður notar ekki bílinn á meðan verið er að þvo hann. Annað er lygi og rógburður. Og að misnota aðstöðu sína og leigja sjálfum sér þotuna sína á kostnað hluthafa - það er bara lygi og rógburður. Hann var í vinnunni og verðin í búðunum í útlöndum eru bæði lægri og vöruúrvalið meira. Annað er lygi og rógburður.

Sá sem þetta les hlýtur að átta sig á að Íslenskt þjóðfélag er helsýkt af lygi og rógburði - kjaftsögum og baktjaldasnakki. Þó maður tönglist á lyginni þá gerir það hana ekki að sannleika...þetta vita þeir Karl, Björgólfur og Björgólfur, Sigurjón, Jón, Halldór og Bjarni, Hannes og hinir.

Ég tek ekki þátt í slíku. Það er á hreinu.


Margt gerist í hundaheimum....

Ég fékk áhugaverðan tölvupóst frá hundeiganda - og sem hafði greinilega lesið um nýju vöruna okkar sem kemur vonandi í verslanir strax í næstu viku - en framleiðsla hefst uppúr helgi.

En hvað um það - hér er um frábært fóður fyrir hunda að ræða og hentar vel fyrir smáhundana - enda köllum við það smáhundamat... URR SMÁHUNDAMAT

En þó það séu upplýsingar á umbúðum fyrir hunda upp að 8 kg þá má auðvitað gefa þessum stóru það líka - enda um hollan og góðan mat að ræða. Border collie tíkin mín elskar þetta líkt og chiahuahua rakkinn minn!

 En kíkið endilega á þessa umræðu um nafnið URR.... sem er jú tilvísun í hund líkt og Murr í kött Smile

 


Gríðarsterk endurkoma - major comeback!

Ég var settur út í kuldann. Það er engum auðvelt og þarf sterkar taugar. Ég er þó ekki með það á hreinu hvað olli - hvað ég gerði af mér. En ég var settur út - á hliðarlínuna og fékk ekki að vera með.

Ég notaði tímann vel. Hugsaði minn gang. Æfði þegar tækifæri gafst og þurfti jafnvel að fara um langan veg til að komast á æfingu. En ég vissi að minn tími myndi koma. Að mér yrði skipt inná - boðið inn í hlýjuna.

Og það var þessi vissa sem hélt í mér lífinu - hélt voninni lifandi. Draumnum um endurkomu.

Nú er þetta orðið að veruleika.

Þeir opnuðu loks aftur í Sundhöllinni á Ísafirði eftir langa lokun. Lokun þegar auðvitað átti að vera opið - þegar allir túristarnir voru hér og þurftu að komast í sund.

Og ég átti gríðarsterka endurkomu í gær...1.september.....kl. 19:30...á slaginu.

Kom sterkur inn.... í gufubaðsklefann!


Skúrkar í skjóli sakleysis.

Ég sá einkar áhugavert viðtal í sjónvarpinu um daginn við hann Sigurjón Árnason - þar sem hann var gripinn glóðvolgur í dómshúsinu. Hann var spurður að því hvort hann teldi sig bera ábyrgð...og svarið "bankinn taldi sig vera að gera rétt....bla bla bla...sukk sukk sukkk...."...bankinn taldi....

Bíðum nú aðeins... 95% eða meira af starfsfólki Landsbankans hafði ekkert með þetta að gera og þetta sama fólk er gjörsamlega saklaust af spillingu og sukki þessara fáu sem þarna tóku afdrífaríkar ákvarðanir.

Þetta þykir mér ömurlegt og óþolandi þegar þessir kónar tala um sig sem hluta af bankanum.....þeir örfáu spilltu kónar tóku ákvörðun í nafni bankans og drógu þjóðina með sér í svaðið. Ekki hvarflar að mér í eina sekúndu að hinn almenni starfsmaður bankans hafi verið spurður...enda á allt of lágum launum til að bera ábyrgð...eða þannig.

En að þeir viðurkenni sukkið og svínaríið....- nei...það er þeim ómögulegt.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband