Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Lykilvitni slitastjórnar Glitnis - kominn í vitnavernd allveg eins og ÉG!

Nokkuð hefur verið fjallað um samning fyrrum fjármálastjóra Glitnis við slitastjórnina - hann kjaftar frá og fær í stað loforð um að verða ekki kærður - fer í vitnavernd! Já og Bjarni Ármannsson ku líka fá sömu meðferð!

Nú hefði mátt lesa úr fréttunum þeim að mann garmurinn væri sá fyrsti sem færi í vitnaverndar prógramm - aha..en nei ekki aldeilis - ég gekk í gegnum sama prógramm fyrstur manna fyrir ekki svo margt löngu.

Ég hafði á sínum tíma komist að því hverjir stóðu að því að bláu nammitöflurnar úr Smartísnum voru fjarlægðar! Og sú uppákoma varð þess valdandi að ég þurfti að láta mig "hverfa" - enda ljóst að slíkar upplýsingar gætu reynst skeinuhættar í höndum rangra aðila. Ég var umsvifalaust settur í "vitnaprógramm".

Nú, búandi í höfuðstað Íslands þá var ljóst að til mjög dramatískra aðgerða þurfti að grípa - mig þyrfti að flytja á afskektan stað - og í gervi sem myndi smellpassa inn í íslenska alþýðu landsbyggðarinnar. Leitað var til færustu sérfræðinga á sviðinu og nýtt útlit teiknað upp! Mér var einfaldlega breytt samkvæmt þeim stöðlum sem þekktir voru í höfuðborginni. Sú stofnun sem heldur utan um slíkar upplýsingar er Þjóðminjasafnið - sögudeild landsbyggðar. En mér skilst að nýtt ráðuneyti "landsbyggðar og lýðsráðuneyti" muni taka við þessum starfa þegar það verður sett á laggirnar. IMG_2761 Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var töluvert aðgerð að breyta mér - ekki aðeins þurfti að klæða mig að hætti landbyggðarlýðs heldur varð að gera á mér fullkomna útlits og fasbreytingu! IMG_2726IMG_2724En ofuráhersla var lögð á að ég myndi falla inn í landsbyggðarlýðinn og ekki sæist að hér væri á ferð maður í vitnavernd! Farin var leið sem þeir kölluðu fyrir sunnan "meðallandsbyggðarlúðinn".

Sem fjölskyldumaður þá er jú erfitt að kveðja börnin sín - en í ljósi þess að ekki var hægt að taka allan hópinn með þá kvaddi ég þann yngri IMG_2740en sá eldri fékk að fljóta með - enda alþekkt á landsbyggðinni að í för með bónda sé drengstauli IMG_2758IMG_2741.

Það er skemmst frá því að segja að við féllum vel inn í alþýðu þessa lands - og lifum ennþá fábrotnu lífi í ónefndu þorpi utan Reykjavíkur - höfum margt fyrir stafni - svo sem að greiða niður óráðsíu borgarbúa - en eins og við okkur er sagt í höfuðborginni "til þess erum við" - þá sætti ég mig við það. Að vísu var lopahúfan heit í sumar - svo nú vona ég að haustið fari að láta sjá sig.

Já það er ekki tekið út með sældinni að vera lykilvitni!


Hver er næstur ...þú?..ég?

Ég skrifaði stundum um hann Kristján vin minn sem barðist við krabbamein. En sorgin er einhvernvegin þannig að hún vill engan einn - nei - hún gerir sig eigi ánægða nema að margir hafi um sárt að binda.

 Og..ég veit að maður byrjar ekki setningar á OG...en ég geri það samt.  Vegna þess (ekki er þetta skárri byrjun) að á mínu hjarta liggur svo margt. En þegar Kristján barðist hetjulega fyrir lífi sínu þá sátum við yfirleitt tveir á sjúkrabeðinu. Ég og góður vinur. Vinir sem tóku þá ákvörðun að standa með vini okkar og gera okkar besta.

En í dag stend ég aftur í sömu sporum. Minn kæri vin er alvarlega veikur - með alvarlegt krabbamein. Maðurinn sem var og er  klettur. Maðurinn sem sagði mér að lífið væri ekkert til að leika sér með. Lífið væri gjöf og gjöfin sú gerði þær kröfur að með hana væri farið af ýtrustu varkárni.

En nú er hann sjálfur upp við vegginn hvar Kristján stóð forðum. 

Mig langar að biðja þig kæri lesandi og vinur að biðja með mér fyrir góðum vin.

takk.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband