Gormur frá Súðavík gefur Urr smáhundamat hæstu einkunn! - ný viðbót frá Murr ehf.

Í þessari viku kemur frábær hundamatur frá Murr-  en það er Urr smáhundamatur.

IMG_3055[1]Hér er um fullkomna blöndu að ræða - unna úr hreinu íslensku hráefni. Frábær matur fyrir alla hunda!

Söluaðilar eru þeir sömu og selja Murr kattamat - sjáið frekar á heimasíðu Murr ehf.

IMG_3030

Hér er ánægður neytandi - hann Gormur í Súðavík....Gormur+1[1]gormur+2[1] og hann er sko ekki að líta upp á meðan hann rífur í sig dagskammtinn af Urr hundamat!

Gormur+Urr[1] Og nú kemur Urr í verslanir Bónus strax á morgun!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benna

Fann enga almennilega innihaldslýsingu á vefnum, finnst ekki nóg að sjá að það séu kindafurðir, svínaafurði eða hrossaafurðir...ég vil helst fá að sjá ítarlega hvað er í fóðrinu sem ég vel handa hundunum mínum og ketti.

Hef verið að versla ferskfóður og þar á þeirri síðu er gefið upp frá a-ö hvað er í fóðrinu, vítamín og allt.

Þannig mikilvægt er að mínu mati að koma með ítarlegri innihaldslýsingu.

Benna, 14.9.2009 kl. 22:40

2 Smámynd: Þorleifur Ágústsson

Sæl Benna,

Mér þykir afskaplega leitt að þurfa að leiðrétta þig um ýmsa hluti - en staðreyndir eru jú staðreyndir. Fyrst er jú að nefna að engin framleiðsluvara frá Murr inniheldur hrossakjöt eða afurðir af hrossum. Kannski komum við síðar með slíka vöru - en ekki enn. Svo væri auðvitað gaman að heyra frá þér frekar í síma 456 1414 þar sem þú hefur augljóslega ekki fengið allar þær upplýsingar sem þú telur þig þurfa. 

En til að útskýra frekar þessi mál  þá fylgir hér smá texti:

Ólíkt "hráfóðri" þá er Murr og Urr sett saman úr þeim vefjum sem innihalda fullkomin dagskammt af öllum bætiefnum og aðeins vefjum sem má nota til manneldis - og uppgefið hlutfall próteina, kolvetnis, fitu ogsv.fr. Engum bætiefnum er bætt í enda byggjum við okkar þekkingu á einstökum gagnagrunni sem dr. Bragi Líndal Ólafsson fóðurfræðingur hefur sett saman. Reyndar eru afskaplega góðar upplýsingar um þessi mál - náttúrlegt efnainnihald mismunandi vefja - t.d. á heimasíðu Matís (www.matis.is).

Mikilvægt er að vita rétt samsett fóður inniheldur ráðlagðan dagskammt af öllum bætiefnum og að t.d. kettir sem eru hreinræktaðar kjötætur - þeir fá alla sína næringu úr bráðinni - - en mikilvægt er að velja saman vefi í fóður með þetta í huga - svo sem vöðva, fitu, lifur, nýru etc.)

Vaðandi hráfóðrið þá e það þetta áhugaverð "auglýsing" sem þú dregur upp hér af hráfóðrinu - gleymir reynda að minnast á að í því er uppistaðan vambir (soðnar sökum þess að um áhættuvef er að ræða skv. reglugerð -  sem má ekki hafa hráan) nautablóð (er það ekki meðhöndlað líka?) og kindakjöt. Ennfremur eru í því fóðri íblöndunarefni (öll upptalin vítamín og steinefni) sökum skorts á þeim í því hráefni sem notað er - end er hér aðeins verið að nota kindakjöt, vambir og blóð. Ég geri ráð fyrir að íblöndunarefnin séu innflutt - etv. frá Svíþjóð?

Og í allri umræðu um riðuveiki - salmonellu og fleira - þá spáir maður í þetta með hrámeti.

En mundu Benna - að maður á alltaf að velja fóður sem hentar manni sjálfum - ef þú ert ánægð með fóðrið og líðan dýranna þinna - þá er um að gera að nota það - ekki spurning.

Þorleifur Ágústsson, 14.9.2009 kl. 23:35

3 identicon

Kolur frá Ísafirði er hjartanlega sammála Gormi.

Dagný (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband