Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Aðgerð lokið - við tekur lyfjakúr...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Guð minn góður...hvað á að ganga nærri þessum mönnum!
Ég spyr - á hverju eiga þessir ræfils launþegar að lifa? Nú er pressan orðin slík að forstjóri Glitnis er búinn að lækka launin um helming - er eftir lækkun "bara" með á þriðju milljón í mánaðarlaun!
Hverslags kröfur eru þetta eiginlega - veit fólk ekki að það þurfti að greiða manninum 300 milljónir - ÞRJÚHUNDRUÐ MILLJÓNIR - til að hann tæki við starfinu!? - Maður getur rétt ímyndað sér hverslags skítadjobb þetta hlýtur að vera fyrst menn þurfa slíkar greiðslur til að þiggja starfið.....
Já nú er mál að linni - þessir gaurar eru líka menn - og verða líka gamlir - og þurfa þá væntanlega að nota sömu heilbrigðis og ummönnunarþjónustu sem við greiðum öll fyrir......og unnin er af fólki sem hefur svo "góð" laun að það þarf ekki 300 milljónir til að þiggja starfið......þrífur þessa fugla og skeinir fyrir "skít á priki".......
http://www.visir.is/article/20080225/VIDSKIPTI06/80225095
og hana nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 25. febrúar 2008
Ógeðsleg meðferð Ástrala á sauðfé.
Ég fylltist viðbjóði og satt best að segja fékk ég tár í augun þegar ég las um meðferð Ástralskra bænda á kindunum sínum.
Í Ástralíu er flugukvikindi sem heitir "blue fly" og sem hefur þann háttinn á að verpa eggjum sínum í ullina nærri endaþarmsopi á kindum - síðan klekjast eggin út og lirfurnar leggjast á sauðféð. Til þess að koma í veg fyrir þetta hafa Ástralskir bændur tekið á það ráð að gera viðbjóðslega aðgerð á aumingja skepnunum - skera af þeim húð og hár að aftanverðu ("rasskinnum") - en þá vex ekki ull heldur verður um að ræða stórt ör!
Og þessa aðgerð gera þeir án deifingar - og dýrin öskra og hveljast.
Á myndinni má sjá bændurna misþyrma dýrum sínum.
Viðbjóður af verstu gerð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fimmtudagur, 21. febrúar 2008
Kvenmann sem landsliðsþjálfara í handbolta - ekki spurning!
Það hlýtur að vera öllum ljóst að getuleysi landsliðsmanna á stórmótum gengur ekki lengur. Landsliðið virðist aldrei sýna sitt rétta andlit - áhugalausir og hreint alveg gagnslausir.
Mér finnst einsýnt að eina leiðin til að fá upp áhugann sé að fá kvenmann sem landsliðsþjálfara - enda hefur kvennahandboltinn verið í hraðri þróun á meðan karlarnir "standa í stað". Náum honum upp - handboltanum - getunni og viljanum.
Það þýðir ekkert að vera með "bygginguna í lagi ef engin er fegurðin í reið" er sagt í hestaíþróttunum - nei ekki aldeilis.
Við íslendingar kusum okkur fyrsta kvenforsetann - það gerði okkur gott - nú skulum við halda áfram og ráða konu í stöðu þjálfar landsliðsins.
Upp með getuna og konu í þjálfunarstöðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Ólíuhreinsistöð - Vestfirskur stóriðnaður framtíðarinnar?
Mikið hefur verið ritað og rætt um hugmyndir manna um olíuhreinsistöð - og að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir líkt og vera ber.
Er það slæmur kostur? Eru það endalok náttúruperlunnar Vestfjarða? Þýðir það að við drögum hingað Vestur mengandi og fljótandi olíuferlíki sem brotna í tvennt og fylla alla firði af olíu svo að æðarfuglinn drepst í fjörunni og fiskurinn í sjónum? Ekker líf verði eftir nema starfsmenn stöðvarinnar og nokkrir aðrir?
Eða er það byrjun á hagsæld á Vestfjörðum - þar sem mikið kapp verður lagt á að stunda umhverfisrannsóknir - fjármunum veitt í bætta vegi og betri þjónustu? Að loks verði hægt að hægja sér á Hornströndum án þess að næsti maður gangi í hægðum sínum og annarra við skoðun sköpunarverksins? Að það opni ný tækifæri í menntun og framtíðin verði björt?
Já - maður spyr sig. En upplýst getum við ekki tekið ákvörðun. Ég læt því hér fylgja myndband um Mjallhvíti - þó án dverganna - en það er gríðarleg gasvinnslustöð í norður Noregi - Hammerfest.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Bósasaga.
Ég sagði frá því að það væri kominn nýr fjölskyldumeðlimur - Bósi. Og nú er kall farinn að láta til sín taka í "kvennamálunum" - en hann hefur þá bjargföstu trú að Salka sé hans gella!
Að vísu sendur Bósi vart út úr hnefa fyrir utan að búið er að "afvopna" hann - þó "byssuhlaupið" sé ennþá til staðar. Og á eftir Sölku gengur hann hnarreistur með trýnið upp í loftið líkt og breskur aðalsmaður á göngu um einhvern af fínni görðum Lundúnaborgar. Að vísu fylgir þessu hætta - því Salka er með öllu óvön slíkum tilburðum og að það skuli koma svona "að neðan"....að hún á það til að snarstoppa og jafnvel setjast - og þá þarf Bósi að vera snöggur svo að hann verði ekki undir.
En Bósi gefst ekki upp. Hann veit það að hans hlutverk er að vera til gagns fyrir hitt kynið og kann allar hreyfingar - þó svo að ekki virðist honum alveg vera ljóst hvar réttur staður er. Í það minnsta kom hann aftan að Sölku þar sem hún lá á gólfinu - setti framlappirnar uppá hrygg aftanfrá - rétt við herðar Sölku og sveiflaði mjöðmunum eins og þrautþjálfaður tangódansari. Salka opnaði ekki augun á meðan - velti sér á bakið og Bósi mátti fótum sínum fjörið þakka - enda varð hún hans líklega ekki vör svo mikið var tillitsleysið.
Bósi er nefnilega að spila langt yfir getu.
Já Bósi stendur undir nafni - þó svo að genin séu í blindgötu og komist ekki lengra. Það skiptir engu máli - hann er nefnilega meira svona að sýna en gera.´
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Skugga Sveinn allur - leiksigur Bolvíkingsins síúnga.
Síðast sýning Litla leikklúbbsins á Skugga Sveini var í kvöld. Þetta er búið að vera skemmtilegt ferli þó að á stundum hafi maður efast...en í hvert sinn sem Sigurður í Dal hefur byrjað "fjórir hestar í fyrra..." þá hafa hlutirnir gengið upp. Ég held meira að segja að áhorfendur hafi skemmt sér ágætlega og oft mátti heyra hlátur - þó stundum hafi maður merkt að um skyldmenni eða vini hafi verið að ræða - en það er nú bara hluti af leiknum.
Sjálfur lék ég Jón sterka sem ekkert gat nema hreykja sér af eigin ágæti - slappari var hann þegar á hólminn var komið og snúinn niður næsta auðveldlega af heiðarsveininum hýra - honum Haraldi. Ég hafði gaman af þessum karakter - og satt best að segja minnir hann mig um margt á samferðamenn - og kannski sjálfan mig - hver veit....
Skuggi sjálfur var illur maður og vondur - dimmur og dökkur á brún sem vildi engum vel - kannski ekki ósvipaður vondum mönnum nútímans - en þeir eru margir og íllskan ekki endilega falin í mannvígum.
Já það þetta var skemmtilegt. Alveg hreint magnað hvernig óþjálfaðir leikarar umbreyttust og fóru í karakter - urðu að viðfangsefninu og sumir hverjir hreinlega festust í karakter líkt og sagt er á leikhúsmáli. Einn slíkur ættaður úr Bolungarvík fór hreinlega hamförum sem húsbóndinn í Dal - breyttist í blöndu af Matthíasi Jochumssyni og Bjarti í Sumarhúsum - flygi inná þing fyrir Framsókn ef hann færi í framboð og slægi í gegn á Búnaðarþingi - honum eru grösin allt.
Nú er að sjá hvort búðarkarlinn komi heill af grasafjalli - eða sitji fastur á þúfu við Sumarhús.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Kominn út úr skápnum....
Ég hafður að spotti. Ástæðan er sú að ég tók að mér lítinn tjívává hund - sannkallaðan kjölturakka. Og nú vill konan meina að kerlingin í mér hafi brotist "út úr skápnum" - að ég hafi komið út sem "miðaldra kerling með töskuhund"!
Ég er auðvitað alsæll með nýja hundinn - og búinn að gefa honum nafnið Bósi - enda hörku hundur þó búið sé að taka úr honum grjónin - BÓSI.
Salka mín er nú ekkert að kippa sér upp við þetta - finnst ansi lítið til Bósa koma og nennir satt að segja ekkert að pirra sig á Bósa - ekki einu sinni þegar Bósi læddist inn í búrið hennar Sölku og stal beini - beini sem var allt of stórt fyrir hann - þurfti að draga það á eftir sér upp í bælið.... Salka hin rólegast sótti beinið - ýtti Bósa burtu með trýninu og tók sitt bein. Ekkert meira um það að segja þó kurraði í Bósa!
Úti á lóð á hún það til að stíga á Bósa greyið ef hann er fyrir - enda Bósi ekki mikill fyrir hund að vera þó kjafturinn sé fyrir neðan nefið.....og ég þarf iðulega að láta Sölku bíða inni á meðan Bósi skreppur út að skíta - hann fer nefnilega í stellingar og þolir illa þegar Salka rekur í hann trýnið - dettur þá um koll og allt fer í steik - þarf að byrja upp á nýtt sem getur verið erfitt þar sem Bósi er svo lítill og kulsæll að ef hann nær ekki að skíta innan nokkurra mínútna þá þarf að taka pásu - fara inn og hita sig upp....gera svo aðra tilraun.
Það finnst Sölku lélegt - hún er nefnilega snillingur í stellingum og snýr afturendanum iðulega upp í norðanáttina - og eftir nokkur dansspor og hringi og þegar rétt lykt er í vitum þá gengur allt upp - eða réttara sagt niður!!
Já nú gengur á ýmsu - ég þarf sennilega að fara suður að finna góða tösku fyrir Bósa.....og líklegast föt í stíl.....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Tennurnar töluðu tungum og ráku drenginn út í afbrot....
Maður einn brenndi tvær íbúðir í Gautaborg - skemmdi bíla og braut rúður. En það var ekkert honum að kenna - nei framliðin kerling í Albaníu stýrði gerðum hans.
Hann hafði nefnilega fengið nýjar tennur eftir slys og fór aðgerðin fram í Albaníu. Svo vildi til að tennur úr kerlingunni framliðnu voru notaðar og nú er komið í ljós að sú hin sama er hin versta - rekur strák ræfilinn áfram í afbrotum og óhróðri - talar við hann með tönnunum. Og ekki nóg með það - bansettar tennurnar hafa hug á að yfirgefa drenginn - hafa bitið í sig að leggjast í ferðalög.
Sérfræðingar í sálargæslu í Svíþjóð hafa komist að því að líklegast sé nú eitthvað að - að sennilega þurfi drengurinn hjálp!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Hún mamma mín og helvítis tölvan....
Tölvur eru böl - það er mér svo sannarlega að verða ljóst. En því miður getur nútímamaðurinn vart án þeirra verið og reyndar snýst stór hluti vinnudagsins um notkun slíkra tækja.
En hvað um það.
Ég hef í mörg ár átt hana mömmu mína - í raun alveg frá fæðingu. Að vísu hef ég staðið í samkeppni um hana við systur mínar fjórar - en sem einkasonur þá var auðvitað sigurinn í höfn um leið og mamma sá mig með "skottið á milli lappanna" á fæðingardeildinni. En það er ekki þetta sem er málið - málið er grafalvarlegt - mjög alvarlegt og ef það hefði verið "sonar-athvarf" á Ísafirði þá hefði ég leitað þangað um daginn. Svo hrikalega var mér misboði - höfnunin mikil.
Ég nefnilega varð fyrir alvarlegu "slysi" - nú, konan mín eldar bara svo góðan mat að ég ræð ekki við mig - ríf í mig af áfergju og stjórnleysi og allt endar þetta utan á mér með einmitt þessum alvarlegu afleiðingum að tvennar gallabuxur gáfu sig gjörsamlega....rifnuðu nánast utan af mér þegar ég rétt si sona beygði mig eftir súkkulaði mola sem ég hafði misst.
Og þá kemur mamma til sögunnar - með tölvuna. En ónefndur tölvusölumaður hér í bæ "lét" mig kaupa fartölvu fyrir mömmu....eða svo kýs ég að muna það - og nú er mamma semsagt komin með tölvu og á helv....tölvunni er msn. Ég í sakleysi mín sendi mömmu minni - já MÖMMU MINNI til margra ára svohljóðandi skeyti á msn:
"mamma - ég þarf að senda til þín tvennar gallabuxur og biðja þig að gera við"..... og svarið lét ekki standa á sér...
"Tolli minn, ég er hætt svona þjónustubrögðum"...."þú ert nú orðinn svo gamall að þú hlýtur að bjarga þér"....
Hvílík ósvífni, hugsaði ég.... er hún búin að yfirgefa mig....MIG og ég bara rétt liðlega fertugur....!!??
Nú, það er best að svara þessu og ég skrifa "Heyrðu nú mig mamma...elsku mamma...hvað á ég að gera..hjálp"... og svarið kom frá helv..tölvunni: "Auður seems to be OFF LINE......and can not reply to you......
Já mamma mín er semsagt hætt að þjónusta mig - og er bara OFF LINE......
Munið http://bjarnipall.bloggar.is/blogg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)