Tennurnar töluðu tungum og ráku drenginn út í afbrot....

tennurMaður einn brenndi tvær íbúðir í Gautaborg - skemmdi bíla og braut rúður. En það var ekkert honum að kenna - nei framliðin kerling í Albaníu stýrði gerðum hans.

Hann hafði nefnilega fengið nýjar tennur eftir slys og fór aðgerðin fram í Albaníu. Svo vildi til að tennur úr kerlingunni framliðnu voru notaðar og nú er komið í ljós að sú hin sama er hin versta  - rekur strák ræfilinn áfram í afbrotum og óhróðri - talar við hann með tönnunum. Og ekki nóg með það - bansettar tennurnar hafa hug á að yfirgefa drenginn - hafa bitið í sig að leggjast í ferðalög.

Sérfræðingar í sálargæslu í Svíþjóð hafa komist að því að líklegast sé nú eitthvað að - að sennilega þurfi drengurinn hjálp!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þarna hefur hinn illi tannálfur tekið völdin. Eitthvað hafa menn viljað líkja honum við almættið, sem einnig sendir fólki yfirnáttúruleg sms með beiðni um óhugnarlegurstu greiða. 

Kannski þarf drengurinn sennilega hjálp frá jarðbundnari öflum. Það er greindarlega athugað.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.2.2008 kl. 20:57

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

hann hefur bara verið andsetinn..hehe

Agnes Ólöf Thorarensen, 15.2.2008 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband