Mamman drap Madeleine - ekki lengur tilgáta heldur staðreynd.

madeleine_mccann_404267aÞað ku vera búið að sanna að móðir Madeleine hafi gefið henni of stóran skammt af svefntöflum. Líkamsvessar sem fundust í bílaleigubíl foreldranna og tilheyrðu litlu stúlkunni innihalda stóran skammt af lyfjum. Ekki lengur tilgáta - heldur staðreynd. Portúgalska lögreglan hefur í sínum fórum þessi gögn og því er ekki langt að bíða þar til ákæra verður gefin út.

En áfram reyna foreldrarnir að ljúga sig út úr þessu. Líklyktin sem var í bílaleigubílnum segja þau að fylgi þeim af sjúkrahúsunum þar sem þau starfa....jamm.

Og blóð úr stúlkunni fannst ekki bara í herberginu á hótelinu - nei, líka í íbúð sem þau höfðu til umráða eftir að hún hvarf.

Það sem er áhugavert í þessu út frá fræðilegu sjónarhorni - er að sá sem hefur komið upp um foreldrana er hundur - svokallaður líkhundur. En þessir hundar eru sérhæfðir í að þefa uppi lík. Og í þessu tilfelli hafa sérhæfðir líkhundar verið notaðir til að þefa uppi sönnunargögn. Engin mannsins tækni gat það - en nebbinn á hvutta sagði alla söguna - ótrúleg hæfni.

Já hér er greinilega nýtt dæmi um slæmar ákvarðanir mannskepnunnar - því víst er að ekki hefur móðirin ætlað sér að myrða dóttur sína - eða? Harmleikur og allt væntanlega gert til að geta slakað á með vinum eina kvöldstund á veitingastað. Já, flestir hefðu tekið börnin með.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Er þetta ekki bara Séð & Heyrt þeirra Svía? Ef manneskja overdósar af svefnpillum, úr hverju blæðir þá?

Jóna Á. Gísladóttir, 14.9.2007 kl. 11:53

2 Smámynd: Katrín

Er ekki fullsnemmt að ,,fagna''?

Katrín, 14.9.2007 kl. 12:30

3 Smámynd: krossgata

Er eitthvað búið að sanna?  Eru þetta ekki bara sögur af sönnunargögnum, hafðar eftir hinum og þessum "háttsettum áreiðanlegum" heimildamönnum?

krossgata, 14.9.2007 kl. 12:51

4 Smámynd: Þorleifur Ágústsson

Getgátur og getgátur - ég segi vonandi. Vil ekki hugsa til þess að foreldrar þessarar stúlku séu svo kaldrifjaðir að geta verið með morð (af gáleysi væntanlega) á samviskunni. En að tala um að "fagna" - er nú frekar ósmekklegt. En allir hljóta þó að fagna þegar málið leysist og hægt verður fyrir aðstandendur að kveðja litlu telpu á viðeigandi hátt.

...og sænsku blöðin ljúga ekki....hananú. Heja Sverige.

Þorleifur Ágústsson, 14.9.2007 kl. 12:58

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er skelfilegt ef satt er og í raun skelfilegt hvernig sem þetta kom allt til.  Það er líka merkilegt sem Steinunn Ólína var að skrifa um að það væri mjög sterk fylgni í barnsmorðum með því að foeldrar eigi í hlut.  Ég næ bara ekki utan um það í mínum litla kolli.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.9.2007 kl. 14:33

6 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

ARNGRÍMUR!!! ég gat nú alveg farið í gegn um þetta föstudagssíðdegi án þessara nákvæmu upplýsinga.. Úff....

Æi þetta er allt hið ægilegasta mál. Flott myndbandið hér af Hanhólshjónum.. :)

Ylfa Mist Helgadóttir, 14.9.2007 kl. 17:54

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hef ekki lesið neinar svona afgerandi fréttir um þetta mál hér í bretlandi......

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.9.2007 kl. 20:37

8 Smámynd: Katrín

Má vera Þorleifur en mér fannst fyrirsögnin allrosaleg og ósmekkleg.  Við erum þá jöfn í ósmekklegheitunum

Katrín, 14.9.2007 kl. 21:07

9 Smámynd: Þorleifur Ágústsson

Sæl. Rétt er það en því miður er þetta í raun bara í anda umfjöllunar sem ég vitna í. En þetta mál er auðvitað hið ömurlegasta og virðist versna enn.

Þorleifur Ágústsson, 14.9.2007 kl. 21:25

10 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hefði haldið að foreldrarnir, sem eru læknar, kynnu að gefa barni réttan skammt af svefnlyfi ef þau ætluðu að svæfa hana. ??????

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.9.2007 kl. 21:40

11 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Málið er að í Bretlandi virðast hjónin hafa ótæmandi stuðning, í blöðum og meðal almennings. Þegar þau segja að sönnunnargögnum hafi líklega verið plantað þarna af lögreglunni - og enginn setur spurningar við málflutning þeirra þá blöskrar mér.

Ég reikna með að landlægt vantraust norður Evrópubúa á getu suður Evrópskra þjóðfélaga til að virka spili þarna inní - og við þekkjum þetta vel hér á Íslandi, við stöndum með okkar fólki sem lendir í vandræðum ERLENDIS.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 16.9.2007 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband