Miðvikudagur, 12. september 2007
Ófyndni og vitleysisgangur.
Ég er sammála sjálfum mér. Færslan í fyrradag með bleyjurnar var ómakleg og ómálefnaleg. Það er ófremdar ástand í miðbæ Reykjavíkur - það er staðreynd. En þrátt fyrir allt þá má ekki skella skuldinni á skemmtanaglaða - umhverfið verður allt að breytast.
Og lögreglustjóranum og hans starfsfólki ber auðvitað að herða tökin - réttu tökin og þá auðvitað engin vettlingatök. Kominn tími til.
En mín skoðun er einfaldlega sú að ganga rétt til verka - vera ekki með offors og óþarfa fantaskap við þá sem í raun eru ekki orsök vandans - beina spjótum og aðgerðum að orsökinni - en taka ekki eilíft á afleiðingunum. Við vitum það að margt má betur fara í samfélaginu - og bara sú staðreynd að skortur er á meðferðarúrræðum þýðir ekki að sérsveit lögreglunnar sé kölluð til og látin "hreinsa upp skítinn".
Nú verður jafnaðarstjórnin að taka sig saman í andlitinu - hreinsa til og efna loforð.
Athugasemdir
Mér fannst þetta nú bara fyndið Tolli og vildi sjá meira af slíku í gagnrýni á yfirvöld. Því með húmornum er oft best að koma háalvarlegum skoðunum til skila. Dario Fo er nú gott dæmi um slíkt.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2007 kl. 15:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.