Brynhildur drottning Íslands - Eiríkur Fáfnisbani - Jón Utanríkisráđherra og morđtilraun í Óshlíđ.

Ég held ađ ég sé komplett ađ verđa ruglađur. Kosningabaráttan er orđin á ţann veg ađ ég veit ekki hvađ snýr upp né niđur aftur eđa fram eđa ţar um kring. Og svo til ađ bćta gráu ofan á svart ţá settist ég fyrir framan sjónvarpiđ í gćrkveldi og ćtlađi ađeins ađ skerpa á sögukunnáttunni og rifja upp bardagann viđ orminn Fáfni. En ţar var allt eins og í pólítíkinni - vantađi ekkert annađ en Jakob Magnússon í teinóttum jakkafötum vopnađan tilgerđarlegum frösum til ađ kóróna vitleysuna. Brynhildur var orđin drottning af Íslandi sem ég hélt ađ ekki hefđi veriđ fundiđ á ţessum tíma og Sigurđur hét Eiríkur..... í ţađ minnsta í ţćr mínútur sem ég horfđi! Nú vantar ekkert annađ en ađ Sjálfstćđismenn tapi gjörsamlega glórunni og taki Frjálslynda međ sér í ríkisstjórn og geri Jón Magnússon ađ Utanríkisráđherra.

Hvar endar ţessi vitleysa? Ađ vísu endađi hún hjá okkur Hrafnhildi nćstum ţví um helgina ţegar viđ ćtluđum ađ fá okkur bíltúr til Bolungarvíkur - lentum ekki í grjóthruni heldur voru ţar á ferđinni fljúgandi björg - tóku međ sér vegriđ og brutu malbik. Mér brá í brún - fjallsbrún. Stoppađi bílinn ćtlađi út ađ kíkja ađeins á ţetta - en af einhverju orsökum skipađi frúin mér til baka - var eithvađ stressuđ. Ég náttúrlega hringdi í 112 til ađ tilkynna lífshćttulegar ađstćđur - stórgrýti ţakti veginn og guđ má vita hvađ - en ekkert samband fékkst viđ lögguna fyrir Vestan - sjálfsagt ekki í GSM sambandi - Já hún Ţuríđur sundafyllir var í vondu skapi ţennan dag og reyndi ađ drepa mig - Sjálfsagt hefur Grímur vinur minn frá Dröngum veriđ ađ krukka í hólinn ţar sem hann segir hana dysjađa - ţađ er á hreinu. Svo ađ nú ćtla ég gera eins og Gummi í Byrginu - kćra kellu fyrir verknađinn - alla vega ađ hugsa máliđ - svona ađ sjá til.

Svo er nú ţađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband