Ólafur forseti - bundinn átthagafjötrum.

Mér sýnist Ólafur forseti vor vera kominn í tilvistarkreppu. Staða hans sem forseta stendur honum orðið fyrir þrifum í veislulífinu. Ólafi finnst gaman að vera í veislum -  halda ræður - vera aðal - með Dorrit sligaða af demöntum og fíneríi upp á arminn. Veislurnar með ríka og fína fólkinu eru vettvangur sem hugnast Ólafi enda eyðir hann æ meiri tíma í slíka iðju - kannski af því að Dorrit er ættuð úr gljáheimum.

En sá böggull fylgir skammrifi að Ólafur er forseti lítillar þjóðar og því er kannski ekki mjög flott að ferðast með einkaþotum fyrirtækja eða einstaklinga - það er bara ekki passandi manni í hans stöðu - sem auðvitað á að starfa fyrir alla Íslendinga. Ekki bara þá sem eiga pening og geta boðið forsetanum lúxus og stuð.

Og hvernig bregst Ólafur við? Jú hann segir þjóðina verða að gera upp við sig hvað þjóðin vill! Já, fólki skal bent á að það er sko ekkert auðvelt að vera Ólafur - sem fórnar sér fyrir þjóðina - í það minnsta þeirra sem eiga þjóðina....eða peninga þjóðarinnar. Og þegar hann er ekki á þeirra vegum í útlöndum þá er hann með veislu fyrir sama fólk á Bessastöðum. Já... og skreppur svo reyndar út á land af og til að hitta almúgann - oftar en ekki án Dorritar sem þarf auðvitað að hvíla sig eftir öll ferðalögin - skíðaslysin og veislurnar. Jú þetta er erfitt líf fyrir forsetann sem ferðast meira en allir fyrri forsetar til samans. Hann tekur öfugan Ronald Regan.... sem byrjaði í Hollywood og endaði sem forseti.....því að Ólafur byrjar sem forseti og dreymir um að enda sem Hollywood stjarna. Og við...þjóðin....erum honum fjötur um fót. Átthagafjötrar.

Kannski er það bara Dorrit sem er að ganga fram af Ólafi - enda konan óvenju vinarík - á heilan helling af frægum og ríkum vinum og það er ekki létt fyrir púkann að Vestan að skyndilega stökkva út í þá djúpu laug.´

Já það er vandlifað. En mundu Ólafur að þú getur hætt eftir þetta kjörtímabil og leikið þér eins og þig listir. Eða verðurðu þá ekki lengur númer eitt??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Takk fyrir þetta.  Hann frændi minn, matti í smiðjunni á Þingeyri, kunni ekki við Ólaf, ekki af pólitískum ástæðum, heldur vegna þess, að hann hafi ævinlega verið með höndurnar kyrfilega í vösunum, þegar aðrir vor að bjástra við fisk og svoleiðis nokk.

Hann virðist hafa haft rétt fyrir sér, þegar hann sagði, Ólaff ekki verða til nokkurs nýtur annars en að verða sendill fyrir fína herra, sem þyrftu duglega hunda að arga þá mikið lægi við.

Nú er foreti lýðveldisins orðinn einmitt það, sendill (vill ekki segja sendi-tík) fyrir auðvaldið.  Öðruvísi mér áður brá með téðan Ólaf.  Herrar hans nú eru sumsé FLgrúpparar, Baugs-grúpparar, og allskonar öðruvísi grúpparar. 

Er þá Ólafur orðinn Grúpppía?

HAnn Einar minn Oddur,  Guð blessi minningu hans,- sagiðst vera mjög feginn að hafa fæðst karl-maður, því ekkert væri að því að segjast  Gleði-maður en öðruvísi væri, hefðihann verið fæddur kona, það væri ekkert fínt, að vera Gleði-kona.

Guð einn veit hvað fólki gekk til að kjósa Ólaf á sínum tíma.  Svo mikið er víst, að það gerði ég ekki og þegar úrslitin lágu fyrir, fór ég á fund Vigdísar og fór þess á leit við hana, að það meðan hún væri á dögum, og Ólafur gengdi embætti, mætti ég líta á hana sem minn foresta.  Hún varð við þessari beiðni minni og því þarf ég ekki að skammast mín fyrir MINN forseta.  Þið hin aftur á móti þurfið að skoða ukkur.  Hver dæmi sjáfan sig og láti samviskuna ráða.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 7.10.2007 kl. 22:34

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Þvílíkur öfundsýkisheimóttarpistill. 

Fyrri forsetar voru einfaldlega forsetar á allt öðrum tímum en Ólafur.  Gerum okkur grein fyrir því að GSM símarnir komu á markað árið sem Ólafur var kosinn.  Internetið varð almenningseign á því ári og árinu á undan, þ.e. 1995 þegar fyrsti heimabankinn kom á markaðinn.  Allir bankarnir voru ennþá í eigu ríkisins á þessum tíma og líklega hefur Sverrir Hermannsson ennþá verið bankastjóri Landsbankans.

Það voru einfaldlega allt aðrir tímar og hagsmunir Íslendinga fyrst og fremst á Íslandi. 

Ólafur hefur staðið sig mjög vel að mæta á viðburði hér á Íslandi þrátt fyrir að hafa verið á stanslausum ferðalögum út um allan heim við að aðstoða íslensku útrásina.  Þessi vinna skapar fjöldamörg störf hér innanlands.  Bara bankarnir hafa fjölgað starfsmönnum á Íslandi um 800 manns frá síðustu áramótum.  Það gerist ekki að sjálfu sér heldur er dæmi um afleiðingu þrotlausrar vinnu útrásarvíkinganna undanfarin ár og þar hefur forsetinn skipt verulegu máli. 

Það er allt annað hlutverk að vera forseti árið 2007 heldur en það var 1987 og án nokkurs vafa mun meira krefjandi starf að vera forseti í dag en þá.

Hvenær ætla Íslendingar að skilja það að þegar menn fara erlendis í vinnuferðir þá eru þeir ekki í fríi eins og við þegar við förum erlendis.  Það er ekki spennandi að eyða 20-30 klst. í mánuði í flugvél og flestum nóttum á hótelum.  Ólafur sér alla vega ekki barnabörnin á meðan.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 7.10.2007 kl. 22:43

3 identicon

Heill og sæll, Þorleifur og aðrir skrifarar !

Snilld; Þorleifur, hjá þér; sem ykkur Bjarna reyndar báðum.

Velti fyrir mér, úr hvaða bómullarveröld Sigurður blessaður Viktor; er sprottinn. Virðist; ekki hafa unið mikið, með berum lúkum, drengurinn.

''Útrásar'' hvað?, Sigurður minn.

Mbk., úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 00:43

4 Smámynd: Signý

Ég veit nú ekki mikið, en ætla því að spyrja, því ekki veit maður neitt nema maður spyrji.

En er það eitthvað möst að hafa unnið með berum lúkum til að teljast manneskja? 

og kannski önnur spurning svona með...

Ef að Herra Ólafur Ragnar hefði nú farið til Kína í boði ríksins til að vera viðstaddur þessa opnun þarna, hafði þá ekki bara verið vælt yfir því að hann væri að eyða peningum skattborgara í rugl?

Er það ekki vaninn þegar að ráðamenn þjóðarinnar eru að fara til útlanda á ráðstefnur og fundi annars?  

Er þá ekki betra að hann eyði peningum þessara auðmanna?

Og er það ekki bara það sem að foresetin er að meina með að "fólið í landinu verði að fara velja"?

S.s að hvort það vilji að hann ferðist það sem hann þarf, er boðið og vill ferðast til í boði ríksins eða að hann grípi gæsina þegar hún gefst og þiggi boð þessara ógurlega slæmu auðmanna um flugfar? 

Annars er ég innilega sammála því sem Sigurður er að segja hérna!

Friður á jörð! 

Signý, 8.10.2007 kl. 10:12

5 Smámynd: Helgi Már Barðason

Um daginn birtist "frétt" um það á vefnum að Ólafru Ragnar hefði sést undir stýri á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Þótti skrifara sérstaklega aðdáunarvert hvað forsetinn væri alþýðlegur. Hann keyrði bara sjálfur, forsetinn!

Ekki veit ég hvað ég mætti Vigdísi Finnbogadóttur oft þegar hún var forseti og ég bjó syðra. Ég sá hana a.m.k. oft undir stýri eða á gangi. Ég sá hana líka dunda í garðinum sínum á Aragötunni þegar ég rölti þar hjá og stundum var hún í eldhúsglugganum, líklega að þvo upp.

Tímarnir hafa breyst, en ekki eins mikið og sumir vilja vera láta. Forseti Íslands þarf, að mínu áliti, fyrst og fremst að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Það er Ólafur Ragnar Grímsson ekki og hefur aldrei verið, frekar en auðmennirnir sem hann húkkar sér far með.

Helgi Már Barðason, 8.10.2007 kl. 10:44

6 Smámynd: Stefán Þór Sæmundsson

Fátítt að sjá svona óhemju þroskaða umræðu, þrungna af víðsýni og virðingu, mannkærleik og samstöðu, umburðarlyndi og visku. Sannarlega gott fyrir þjóðarsálina þegar svona vönduð og vel unnin innlegg verma hana á nöprum haustkvöldum. Manni hlýnar líka um hjartarætur að sjá að slíkar mannvitsbrekkur þrífist ekki aðeins í innsta hring Valhallar heldur einnig í hinum dreifðu byggðum landsins. - Skilaðu kveðjur til Hrafnhildar.

Stefán Þór Sæmundsson, 10.10.2007 kl. 22:11

7 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Tek undir þetta með Stefáni.  Þegar maður fylgdist með ajatollunum í Írak hélt maður að Komeiní og einhverjir fáir aðrir væru svona strangtrúaðir og þröngsýnir. Nei, það er til fullt af svona liði um allt land.

Megi Guð vera með ykkur öllum. 

Jón Halldór Guðmundsson, 13.10.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband