Augun á glámbekk - stórmerkileg eru þau læknavísindin....

Ekki er laust við að læknavísindin veki undrun á stundum - jafnvel svo að mann setur hljóðan. Það var einmitt þannig þegar ég kom við í Bragakaffi í morgun og heyrði hreint makalausar lýsingar á aðgerð sem Óli frá Gjögri undirgekkst. Nú er það svo að mönnum ber ekki alltaf saman við kaffiborðið í Bragakaffi um hvað er satt og hvað ekki - en það er aukaatriði - hitt stendur eftir að "hafa skal það sem betur hljómar".

Og svo var það með aðgerðina hans Óla. Ekki ætla ég að dæma um hvort sagan var sögð til að æsa upp Magnús - en hún var sögð og líklegast er hún sönn....nú dæmir hver fyrir sig.... 

Óli ku hafa verið farinn að píra augun meira en góðu hófi gegnir - svo mjög að afgreiðslustúlkur í matvöruverslunum réttu Óla ævinlega skiptimyntina strax þegar hann kom að kassanum - þess fullvissar að nú ætli kall að ræna sjoppuna! Og þetta auðvitað gekk ekki lengur - Óli þorði vart í bankann og meira að segja heimabankinn í tölvunni baulaði þegar Óli reyndi að millifæra. Og suður flaug Óli - pírið yrði að laga - strekkja á og herða svo að augun opnuðust. 

Og nú fara menn að spennast við kaffiborðið - sumir slá sér á lær og kíma - aðrir hrista hausinn og fussa - sérstaklega Magnús.

Óla segist nefnilega svo frá að til þess að læknirinn gæti með góðu móti saumað og snyrt þá þurfti að taka úr honum augun - en þau voru lög til hliðar á bekk og áttu að liggja þar á meðan á aðgerð stóð. Óla varð nú ekki um sel en fannst sjónarhornið nokkuð skemmtilegt - horfði á sjálfan sig liggjandi á bekk og gullfallegar hjúkkurnar stumra yfir honum - með tómar augntóftirnar!

Og þá gerist það óvænta - og það sem Magnús neitar trúa - ein hjúkkan rekur sig í annað augað og með það dettur það í gólfið...."og þá sá ég uppundir´ana" sagði Óli.

Nehei...ég trúi þér ekki segir Magnús og hrópar upp yfir sig...þetta er lýgi...ég trúi þessu ekki.

Jújú segir Óli - allveg makalaust. Verst að ég var ekki með gleraugun...þvi ég sá ekki hvort hún væri í nærbuxum......

Já kaffitímarnir í Bragakaffi eru magnaðir og ekki síðri en undur læknavísindanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

djöfull sé ég Maggút fyrir mér segja þetta: "Þetta er lýgi!!"

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 26.5.2008 kl. 23:28

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Frábær saga

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.5.2008 kl. 01:31

3 Smámynd: Hansína Hafsteinsdóttir

Lifi á þessari í dag takk

Hansína Hafsteinsdóttir, 27.5.2008 kl. 08:48

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta er örugglega dagsatt

Hólmdís Hjartardóttir, 27.5.2008 kl. 13:10

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Helvíti góður.

Hér er einn augnlæknabrandari að launum:

Pólverji nokkur þurfti að endurnýja ökuskírteinið sitt, þar sem það gamla var útrunnið.
En fyrst þurfti hann að gangast undir augnskoðun hjá augnlækni, áður en sýslumannsembættið léti Pólverjanum í té nýtt ökuskírteini.
 
Augnlæknirinn lét hann lesa á spjald með stöfunum     
 
C Z W I X N O S T A C Z 
 
"Getur þú lesið þetta?' Spurði augnlæknirinn.
"Lesið þetta?'  Endurtók Pólverjinn.  "Ég þekki manninn!'

Jón Steinar Ragnarsson, 27.5.2008 kl. 14:25

6 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Hann klikkar ekki á frásögninni hann móðurbróðir minn,alveg dæmalaust skemmtileg saga og ÖRUGGLEGA sönn...

Agnes Ólöf Thorarensen, 28.5.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband