Af stórhættulegum lifnaðarháttum okkar Britney Spírs.

Mér dauðbrá þegar ég opnaði visir.is áðan og áttaði mig á að ég lifi hratt og alls ekki hægar en fræga fólkið - skeyti engu um hættur og háskalegan lifnað.

Og hér er ég að bera mig saman við ekki ófrægari manneskju en hana Britney Spírs - eða Binnu spíra eins og ég kalla hana.

Sem dæmi get ég sagt að núna var ég í þessum orðum skrifuðum að hesthúsa Godiva súkkulaði - fullu af unaði og sykri. Besta súkkulaði í heimi segja sumir. Og ég er ekki svo mikið ósammála.

En samkvæmt öruggum fréttum þá er það þessi súkkulaði lifnaður á henni Binnu sem gerir hana kolvitlausa. Ekki brennsinn eða pillurnar - nei - nammið og sykurinn.

Ég held að ég sé ekki eins slæmur og Binna - ég í það minnsta drekk dæet kók. Nú til að jafna út allt hitt. Svo virðist sem kenning mín um að orsakir "þéttleika" sé að leita í beinunum - að ég sé stórbeinóttur - þá sérstaklega um mig miðjan og að aftanverðu - sé bara ekki að ganga upp. Ég er því að reyna að jafna þetta út með dæetinu.

En svo eru auðvitað fleiri og örugg merki um að ég sé að klikkast eins og Binna - ég er búinn að láta snoða á mér hausinn - orðinn kíví eins og sonurinn sagði.

Og það var enginn annar en rakari fræga fólksins á Ísafirði sem gerði það - hann Villi Valli. Ég var sem betur fer ekki það klikkaður að færi á uppstílaða hársnyrtistofu - nei - ég fór til alvöru manns sem notar tæki sem heyrist almennilega í og er tengd í vegginn með þykkum rafmagnssnúrum - ekkert "hæ tekk" kjaftæði. Enda sópaði hann þessu af mér á svip stundu - hrein unun að vera viðstaddur. En Villi Valli klippir mann á meðan beðið er.

Já - nú tek ég mér tak og hendi mér í ræktina. Fer í "stúdíóið" eins og sagt er fyrir Vestan  - til Stebba Dan - og verð orðinn spengilegur eins og kallinn sjálfur um jólin. Þá er aldrei að vita nema ístran verði farin og ég nái til að hengja skraut á tréð.

Já svo er nú það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tolli minn, nýjasta kenningin er sú að gerfisykurinn fari jafnilla með lifrina og áfengið þ.e.geti orsakað skorpulifur, svo ég held mig bara við búsið mbk. Hólmdís

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

líst vel á - súkkulaði og ræktin fara vel saman, blessaður vertu, fáðu þér svo bara kristaltært vatn úr göngunum og ýstran hverfur jafnhratt og Villi Valli getur snoðað...

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 13.12.2007 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband