Er kennsla í framhaldsskólum á réttri braut?

Eftirfarandi bréf barst stjórnendum Menntaskólans X á dögunum frá nemanda sem vill

> koma á nýtískulegum kennsluháttum í skólanum:

> Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða

> mikið bara að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru

> lesnar í íslensku eru t.d. most boring bækur ever sem enginn les nema > einhverjir proffar! Án djóks! Svo tala þeir einhvað fokking fornmál og maður bara VÓ! og skilur ekki rass og svo hrauna þeir bara yfir mann ef maður spyr kannski aftur hvað hafi skeð fyrir einhvern í einhverri sögu!

Kannski ættu kennarar að pæla í því að gleyma gömlu kennsluaðferðunum

sem eru nú ekkert til að hlaupa húrra fyrir og þeir eru búnir að nota

síðan í örlý seventís og fara að öpdeita sig aðeins.

Þeir gætu t.d. komið sér upp kennslusíðum á feisinu og gætu þá addað

nemendum og þá nottla bara þeim sem hafa áhuga. Þá gætu kennararnir

líka tjattað við nemendur og búið til allskonar quiz og test sem

nemendum þætti gaman af í staðinn fyrir að vera alltaf að bögga

nemendur með sjúklega leiðinlegum prófum.

Svo er gegt góð hugmynd að nemendur gætu þá líka alltaf kommentað á

t.d heimanámið því það er ógeðslega fúlt að hafa of mikið að gera eða

verið með reitings á kennsluna og kannski gætu kennarar sem skora hátt fengið hærri laun eða eikkað.

Kennarar gætu líka verið með til dæmis groups um kjörbókarritgerð og

þá gætu þeir bara joinað sem ætluðu að lesa heila bók eða sollis og fá þannig 10% .

Kennaranir gætu líka sett inn events þegar væri að koma próf og sent

nemendum bara invitation þá myndu allir pottþétt vita það. Ekki eins

og núna þegar stundum er ekki einu sinni sagt manni að það sé próf

næsta dag! Kommon!

Svo ef kennarinn sé veikur þá er næs að hann geti bara sett það í

statusinn og nemendur sjá það og bara hjúkket! Frí! Sjitt hvað það

væri osom! 

Svo gætu allir sett inn myndir * bara svona normal myndir * ekkert

djúsí sem kennarinn má ekki sjá ;) og þá er hægt að tagga aðra

nemendur á myndunum og þá væri miklu meira easy skiluru fyrir

kennarann að muna hvað allir heita sko.

Kennarar gætu líka kennt bara online og allir fengu mætingu ef þeir

væru loggaðir inn. Það væri svít. Þá gætu nemendur bara tjillað heima

kannski og dánlódað bara öllu draslinu í tölvurnar eða ipodana sína!

Allavega er aðal issjúið að kennarar átti sig á því að núna eru þeir í tómu tjóni og það sé möst að þeir geri huge breytingar á kennslunni

sko! Sorrý en þeir verða að spá í að þeir eru líka í keppni við allt

hitt stöffið sem nemendur geta skemmt sér við í tölvunum. Það er audda miklu skemmtilegra að spila tölvuleik eða að horfa á eitthvað á

Youtube heldren að hlustá einhvern kennara tala. En whatever...eikkað

er greinilega að og því er skorað á kennara: Reynið að láta nemendunum hlakka til að mæta í tíma til ykkar og þið rúlið!

Luv,

xoxo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Tolli þetta er aldeilis frabær lesning ,ég hlo mig máttlausa

sigriður Aðalssteins (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 20:56

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

First I was like... WTF?! 8-o and then ROFL x-D.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.11.2009 kl. 22:57

3 identicon

Þetta "bréf" var búið til af íslenskukennara í menntaskóla á Höfuðborgarsvæðinu.

Það var notað í verkefni fyrir nemendur í íslensku á Degi íslenskrar tungu 16. nóv s.l.  Verkefnið fólst í því að nemendur áttu að "þýða" bréfið yfir á gott, íslenskt mál og voru veitt verðlaun fyrir bestu þýðinguna. Tilgangur verkefnisins var að vekja nemendur til umhugsunar um stöðu íslenskunnar og eigið málfar.  Tókst nokkuð vel greinilega!

nafnlaus (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 00:33

4 Smámynd: Þorleifur Ágústsson

Haha, já þetta er snilldarbréf - kom til okkar hér í MÍ - og þeir sem eiga unglinga þekkja þennan talsmáta. :)

Þorleifur Ágústsson, 27.11.2009 kl. 17:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband