Fallegt gamalt hús með sál til sölu í fallegri götu í fallegum vestfirskum bæ.

dsc00607.jpgdsc00608.jpgÞegar við fluttum hingað til Ísafjarðar þá var mér sett það skilyrði að finna hús - gamalt hús og fallegt. Ekki yrði um annað að ræða en að upplifa þægilega tilfinningu að búa í húsi með sögu. Og það gerðum við - keyptum ákaflega fallegt hús í Tangagötunni - hús með sögu og sál.

IMG_6535IMG_6547IMG_6550IMG_6546Að upplifa það að  fólk banki uppá til að fá að skoða æskustöðvar eða híbýli ættmenna - jafnvel fæðingarstaðinn er til að kóróna notalegheitin!

Já og nú er ætlum við að selja - ekki að flytja í burtu - nei aðeins að stækka við okkur. En Tangagötu 23 verður sárt saknað - enda yndislegt hús í fallegri götu.

Hefur þú áhuga? tja, láttu mig vita....ég skal senda myndir...

Upplýsingar er að fá í síma 8585140 eða 8616789


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Hún frænka mín hún Stína Alla átti þetta hús. Man ennþá eftir góðu kleinunum hennar

Enginn verðmiði?

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 12.9.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: María Richter

Ekki hef ég átt hús í Tangagötunni, en hann pabbi minn var fæddur og uppalinn þar.  Það að fólk banki uppá, minnti mig á þegar við systurnar vorum staddar saman á Ísafirði og lágum á gluggunum á Tangagötu 6 "Richters húsi".  Tangagatan er yndisleg gata og Richtershús og öll hin húsin.

María Richter, 12.9.2008 kl. 11:26

3 identicon

Sæll, þetta er ofsalega fallegt hús og ég hef áhuga :)

Mátt endilega senda mér póst með nánari upplýsingum á valadogg@gmail.com

Takk..takk:)

Vala Dögg (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 12:10

4 identicon

já og myndum.

Vala Dögg (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 12:10

5 Smámynd: Rannveig H

Fallegt hús og falleg gata, og neðribæjarpúkar skemmtilegir. Seljalandsvegurinn var mín gata.

Rannveig H, 12.9.2008 kl. 13:12

6 Smámynd: Sonja B. Jónsdóttir

Mig dreymir um hús á Ísafirði.

Þú mátt gjarnan senda mér myndir og svo þarf maður náttúrlega að vita eitthvað um verðið.

Sonja B. Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 16:05

7 Smámynd: Þorleifur Ágústsson

Sæl Sonja, hafðu bara samband í síma 8616789 og heyrðu í okkur

Þorleifur Ágústsson, 12.9.2008 kl. 20:18

8 Smámynd: Fanný

Hvað eru mörg svefnherbergi í húsinu ?
Og eru þau öll uppi ?

Fanný , 14.9.2008 kl. 20:39

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Spurning um að ég kaupi það af þér og flytji það svo hingað úteftir??

Ylfa Mist Helgadóttir, 15.9.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband