Klukkaður af klukkaðri konu fyrir Vestan.

Tja nú versnar í'ðí. Búið er að setja mig upp við vegg og krafist er 10 staðreynda um sjálfan mig. Það er hún Bryndís Friðgeirsdóttir sem lék svo á mig. Ég læt slag standa.

  1. Ég er karlkyns
  2. Ég er Akureyringur
  3. Ég er faðir
  4. Ég á yndislega sambýliskonu
  5. Ég á það til að ýkja "til að vera viss um að segja örugglega satt"
  6. Ég braut rúðu í gamla íþróttahúsinu við Lundargötu árið 1978
  7. Ég bý á Ísafirði og líkar vel
  8. Ég hef verulegar áhyggjur af þróun mála á Vestfjörðum og landsbyggðinni yfirleitt
  9. Ég færi stundum í stílinn á blogginu
  10. Ég er ekki ennþá farinn út að skokka

Já - þungu fargi er af mér létt.......hm.......

Ég ætla að koma þessu klukki áfram og klukka Hannes Hólmstein og systur hans Salvöru. Gaman að sjá hvað kemur út úr því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Jæja karlinn ! Færiru í stílinn ? Jahá............

Níels A. Ársælsson., 13.7.2007 kl. 12:09

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

mikið rosalega berð þú vestfirskt nafn!  ertu viss um að þú sért að norðan?

Sigrún Jónsdóttir, 13.7.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband