Syndir feðranna - Breiðavíkurdrengirnir - óhugguleg lýsing á níðingsverkum.

Ég leigði mér DVD mynd um daginn sem fjallaði um þá skelfilegu atburði sem áttu sér stað á Breiðuvík og sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Hér var hrikaleg lýsing á þeim viðbjóðslegu atburðum sem þar áttu sér stað og manni leið á köflum eins og byggi maður ekki á Íslandi.

Hvernig gat þetta gerst? Spyr maður sig og skilur ekki í þeirri mannvonsku sem í myndinni er lýst. Ekki ætla ég frekar að fjalla um þetta - en ráðlegg fólki að skoða þessa mynd enda hafa allir gott af því að sjá hvað þar gekk á.

Ég ber virðingu fyrir þeim mönnum sem fram komu og sögðu sögu sína - það hefur ekki verið auðvelt.

Eins viðurkenni ég fúslega að ég rúmlega táraðist yfir örlögum þessara pilta sem ekki höfðu unnið til þess að vera sendir í slík helvíti á jörðu - og hve sterkir þeir voru að koma fram fyrir alþjóð og ræða mál af þessu tagi. Það var meira en "starfsmennirnir" sem talað var við gátu gert - þar fóru menn undan í flæmingi og "vissu ekkert". Þetta fólk sem vann drengjunum mein  verður að eiga það við sjálft og guð sinn vænti ég. Mér hinsvegar er óskiljanlegt hvernig þetta hefði átt að fara fram hjá þeim.

Og ekki gat ég betur séð en einn viðmælendanna sé titlaður "guðsmaður" - gangi um í hempu en sem virðist þó stunda einelti enn þann dag í dag ef marka má fréttir um málefni kirkju þess manns. Hann fer líklegast mikinn í sunnudagsmessunum þegar hann þrumar yfir hinum "syndugu"!!

Já hugleysið og skepnuskapurinn verður líklegast ekki launaður nema á einn veg þegar kemur að skuldadögum -   þá þurfa menn að gera hreint fyrir sínum dyrum - líkt og sá hempuklæddi veit, eða ætti að vita.

Ágætu drengir frá Breiðuvík - ef þið lesið þetta þá óska ég ykkur og ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi árum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Tek innilega undir jólakveðjuna til Breiðuvíkurdrengjanna

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 19:37

2 Smámynd: Baldvin Z

endilega nafngreindu guðsmanninn

Baldvin Z, 21.12.2007 kl. 21:15

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

af hverju ertu með matislink?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 02:03

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Þú trúir myndinni fullkomlega?

Einar Þór Strand, 22.12.2007 kl. 10:37

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Fór á frumsýningu þessarar myndar. Í lokin komu upp á svið hrærðir Breiðavíkurpiltar. Þeir virtust mjög sáttir við þessa mynd. Hún verður sýnd í sjónvarpi núnu um hátíðar. Ég held að þetta sé sönn mynd. Gleðileg jól. Ég vona að þú kunnur að borða almennilega skötu.

Hólmdís Hjartardóttir, 22.12.2007 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband