Að lenda í óþarfa hremmingum - ömurleg lífsreynsla!

Fólk lendir í ýmsu á lífsferlinum og sumt er auðvitað alvarlegra en annað. En um eitt getum við sjálfsagt verið sammála og það er hve ömurlegt það getur verið að lenda í aðstæðum sem þó ætti svo auðveldlega að vera hægt að koma í veg fyrir.

Í slíkum aðstæðum lentum við fjölskyldan sl. mánudag.

Slydda, norðan kuldi og hreint ömurlegt veður einkenndi þennan dag. Eftir skemmtilega helgi í Reykjavík vorum við á vesturleið.

Og þá hófst hrakfallasaga fjölskyldunnar. Allt mér náttúrlega að kenna. Stoppuðum á N1 á Ártúnshöfða til að kaupa okkur nesti og um leið ætlaði ég að setja dísel olíu á bílinn. En viti menn - þegar ég stóð þarna í kuldanum og dældi á bílinn þá gerði ég mér ekki grein fyrir að ég hafði gripið RANGA dælu - í stað dísel olíu dældi ég bensíni á bílinn!

Ef ég hefði áttað mig á þessu strax hefði auðvitað enginn skaði verið. En ég gerði það ekki og ók af stað nokkur hundruð metra eða þar til bíllinn stoppaði. Þá laust það niður í höfuð mér að ég hafði óvart dælt bensíni á bílinn!!

Sem meðlimur í FÍB - þá hringi ég þangað. Í annað sinn sem ég lendi í hremmingum á ferlinum og leita til þeirra þá auðvitað gerðu þeir ekkert annað en að benda mér á að leita til aðila sem gætu hjálpað mér! Ég velti fyrir mér hvaða hlutverki þessi félagsskapur gegnir yfir höfuð - því miður.

En hvað um það - ég hringi í pit-stop og eftir sjálfsagt stutta bið á Reykvískan mælikvarða - sem þó var heil eilífð fyrir fólk í okkar stöðu og í norðan kulda - birtist aðstoðarbíll. Sérfræðingurinn sem sendur var talaði því miður litla sem enga íslensku og átti ég því engra kosta völ á að ræða málin við hann. En hann dældi og djöflaðist - og sendi mig svo auðvitað af stað fullvissan um að allt væri í lagi. Sem auðvitað var ekki því bíllinn stoppaði með látum skömmu síðar - og áfram gekk þetta um dágóða stund.

Mér leist ekki á blikuna og hafði samband við umboð bíltegundarinnar sem ég ók á og sendi pit-stopparann burtu eftir að hafa greitt um 14000 fyrir dælingu og nokkra lítra af díselolíu. Hann reyndar kvaddi mig með orðunum "dæla kapút"!

En hvað gat ég gert eða sagt - kann ekkert á vélar!

Ég hringdi því næst í "Krókinn" og þeir fluttu fyrir mig bílinn á verkstæði þar sem ég upplifið sem betur fer hreint frábæra þjónustu - mjög almennilegt viðmót og kurteisi! Þetta var bílaverkstæði á Malarhöfða 2 sem heitir AÐALVERKSTÆÐIÐ - og tóku þeir mér opnum örmum og ég fann að þeir gerðu sér fyllilega grein fyrir þeirri ömurlegu aðstæðum sem ég og mín fjölskylda vorum í - með hugsanlega skemmdan bíl að reyna að komast heim.

Í ljós kom auðvitað að bíllinn var stórskemmdur og viðgerðarkostnaður gríðar hár (hleypur á hundruðum þúsunda). Það er þó bót í máli að viðmót það sem ég fékk á bílaverkstæðinu bætti mjög líðan okkar.

Ég hef síðastliðna viku spurt mig spurningarinnar: Hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta? Já er auðvitað svarið....og á ég þá ekki við hið augljósa svar: "ekki taka ranga dælu"!!

Eftir að hafa talað við fjölda aðila um þetta - og komist að því að þetta er gríðarlega algengt - þá skil ég ekki hversvegna olíufélögin gera ekki einfalda breytingu á stútum dæla til að koma í veg fyrir að svona geti gerst! Ég veit að sum bjóða uppá lykla sem læsa fyrir annað eldsneyti en það sem knýr viðkomandi bíl - en þá um leið eru þau auðvitað að tryggja sér að ekki sé verslað við aðra - en stundum er jú málið það að ekki bjóðast viðkomandi valkostir.

Ef olíufélögin vilja gera eitthvað sem getur gert okkur neytendum verulegt gagn - án mikils tilkostnaðar - þá ættu þau að sammælast um að gera viðeigandi breytingar á dælum sínum svo ekki fleiri lendi í slíkum óþarfa kostnaði og veseni!

Ég er vonsvikinn yfir þessum mistökum mínum - en AÐALVERKSTÆÐIÐ á Malarhöfða 2 (sími þar er 577 4004) hefur veitt okkur frábæra þjónustu!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða kvöldið, já ekki góðar fréttir þetta frá ykkur ferðalöngum, en því miður allt og algengt.

En hverning væri nú að þú sem greinilega FÍB félagi sendir þetta eða svipað bréf til þeirra í þeirri von að þar á bæ væri hægt að vekja Olíufélögin að þirnirósasvefni um þann ósóma að láta dælur vera svona.

Ég veit ekki betur en á mjög mörgum bílum séu dælustútar þannig að það er ekki hægt að troða vitlausri dælu í tankinn því að stútar á söludælum eiga að vera mismunandi eftir því hvaða eldsneyti er á viðkomandi dælu.

Ég lenti eitt sinn í þessu að dæla tvö hundruð lítrum af bensíni á vörubíl, en ástæðan var ekki bara mistök hjá mér heldur hafði verið ruglað slöngum á dælustöðinni þannig að dísil byssan var í bensín tank og öfugt, ég sat þó uppi með allan sakaðan.

krumminn (IP-tala skráð) 30.10.2010 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband